Nú er ég farinn og búinn að vera

Ég nenni þessu Moggabloggi ekki lengur. Ætla að finna mér nýjan vettvang. Hér ætla ég að koma mér fyrir.

Tvífarar

Samfó VG


Siðgæðisvörður

Ég er að spá í að gerast siðapostuli. Það er alltaf markaður fyrir slíka atvinnugrein. Nóg að gera og alltaf líf í tuskunum.

Motta

Um daginn hóf ég að safna skeggi. Það gekk ágætlega þangað til að ég klikkaði illa þegar ég var að snyrta skeggið og rakaði allt of mikið af. Þá voru góð ráð dýr því ekki var hægt að vera með mis mikinn skeggvöxt á andlitinu. Ég ákvað því að raka á mig mottu. 

Mottan hefur komið vel út að mínu mati. Þegar ég var í Háskóla Íslands gerði ég tilraun með mottuvöxt og hún var skítsæmileg svo sem en ekki meira en það. Mottan mín í dag er betri. Ég er þó ekki með neitt teppi framan í mér og margir myndu kalla þetta hálf væskilslegan vöxt. En ég hef tröllatrú á sjálfum mér og hef látið háðsglósur ekki hafa áhrif á mig.

Ég væri reyndar alveg til í að safna aftur skeggi eins og ég gerði um daginn. Því er ég að spá í að raka mottuna góðu og byrja upp á nýtt eða láta yfirvörina mína njóta forskots á hin skeggvaxtarsvæðin.

Þetta mun allt koma í ljós seinna í dag, hver niðurstaðan verður veit ég ekki alveg sem stendur. Ég ætla að hugsa þetta vel áður en ég tek ákvörðun.  


Jim Carrey

Kiss me, my dear, and I will reveal my croissant. I will spread your pate. I will dip my ladle in your vichyssoise

Að kappræða í kappi við hvorn annan

Mikið rosalega eru íslenskir kappræðuþættir slakir. Í gær var borgarafundur í sjónvarpinu og ég horfði á hann á meðan að ég lá upp í rúmi tilbúinn að fara að sofa. Ef ég hefði verið í þættinum hefði ég orðið reiður. Stjórnendurnir gjömmuðu hvað eftir annað ofan í viðmælendurnar, sama hvort það voru stjórnarliðar eða stjórnarandstæðingar, þannig að sjaldnast náði maður að skilja hvað var verið að segja.

Ég veit ekki hvernig slíkir þættir fara fram erlendis þar sem að ég hef aldrei séð slíka þætti. Trú því reyndar að slíkir þættir séu talsvert fagmannlegra unnir í útlöndum heldur en hér á landi. Spyrlarnir eiga ekki að vera besservissar og reyna að kaffæra þeim sem eru að reyna að svara spurningunum sem á þá dembast.

Þetta var eitthvað svo ófagmannlegt og kjánalegt allt saman að ég fékk stundum kjánahroll. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með fundinn því að hugmyndin á bak við sjónvarpsefnið er nokkuð góð. 

Annars fannst mér umræðan um Evrópumálin fín. Margt gott sem þar kom fram og fróðlegt.

Vona að þessir fundir verði betri í framtíðinni. 


Innsog

Ég á ekki til eitt einasta auka tekið orð. Þegar ég kem til með að segja þetta á insoginu þá verð ég löglegur Kanaríkall.

 


George Clooney

,,The only good tomato is a crushed tomato!"

Ofurhetja

Það er búið að bjóða mér í afmælisveislu í kvöld og það er grímubúningaþema. Þemað er hins vegar þröngt og er afmarkað við ofurhetjur. Ég vissi það ekki fyrr en í gærkvöld afmælið væri þemabundið og hefur það ollið talsverðu hugarangri. Ég nenni varla að vera Súperman eða Batman, of miklar hetjur. Ætli Batman sé samt ofurhetja þar sem að Bruce Wayne er venjulegur kall sem klæðir sig í grímubúning? Alltént þá langaði mig að vera OfurGuffi eða Kaftein Ísland en því miður er ekki hlaupið að því að redda þeim búining. Ekki vil ég vera Hulk því að þá þarf ég að mála mig grænan.

Tarzan er ekki ofurhetja né Zorro. Ég gæti reyndar verið fólkið úr X-men, í kasúal klæðnaði.

Annars langar mig mest til að vera Kristján Arason. Það var handknattleiksofurhetja. Besti handboltamaður allra tíma og þeir hlutir sem kauði gerði inni á vellinum jaðra við að vera ofurmannlegir. Ég á gamla landsliðstreyju af honum og get reddað litlu þröngu stuttbuxunum og smelli mér í Handball Special.

Hins vegar hef ég aldrei séð Súperman og Kristján á sama tíma, það skildi ekki vera að þeir séu sami maðurinn? Kannski að ég verði þá bara Súpi og sameina þá. Held það bara. 


Tilgangsleysi

Þessi færsla er um ekki neitt. Hún er tilgangslaust og hefur ekkert gildi, hvorki menningarlegt, vitsmunarlegt né málefnalegt. Ég skrifa þessi orð í tilgangsleysi dagsins. Hef frá engu að segja, tjáningaþörf mín er í fríi.

En það felst samt ákveðin þversögn í þessu hjá mér. Um leið og ég skrifa tilgangslaus orð og tilgangslaustar málsgreinar, gef ég um leið tilgangsleysinu lausan tauminn. Orðin sem ég hef ritað öðlast þar með tilgang, mitt í tilgangsleysinu, til þess að sýna fram á hversu tilgagnslaust tilgangsleysið er. Tilgangsleysi þeirra er því sköpunargrundvöllur fyrir tilgangslaus orð og málgreinar sem eru hlaðnar tilgangi.

Því má deila hvort að titillinn sé tilgagnslaus eða ekki. Líklega hefur titillinn ákveðinn tilgang sem er sá að lýsa innihaldi þessarar tilgangslausu tilgangshlöðnu færslu. Aftur á móti er fullt af tilgangi í þessari færslu sem ekki verður hjá komist og því tilgangslaust að nefna færsluna Tilgangsleysi.

Tilgangsleysið er algjört og verður ekki umflúið, nema að tilgangurinn helgi meðalið. En það er nú allt önnur ella.


Næsta síða »

Um bloggið

Hugmyndir

Höfundur

Atli Rafnsson
Atli Rafnsson
Hafnfirskur höfðingi og helber klaufi í stafsetningu.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • vg
  • untitled
  • vg
  • untitled

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 7252

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband